Hoppa yfir valmynd
Kærunefnd útlendingamála

Nr. 69/2024 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Hinn 18. janúar 2024 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 69/2024

í stjórnsýslumáli nr. KNU23100178

Kæra […]

og barna hans

á ákvörðunum

Útlendingastofnunar

 

I.       Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 31. október 2023 kærði […], fd. […], ríkisborgari Vensúela og Sýrlands (hér eftir nefndur kærandi), ákvarðanir Útlendingastofnunar, dags. 16. október 2023 um að synja kæranda og börnum, […],  fd. […] (hér eftir nefnd A) og […] fd. […] (hér eftir nefndur B), um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja þeim um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

Kærandi krefst þess aðallega að ákvarðanir Útlendingastofnunnar verði felldar úr gildi og að honum og börnunum hans verði veitt alþjóðleg vernd á grundvelli 40. gr. laga um útlendinga sbr. 1. mgr. 37. gr. laganna. Til vara að þeim verði veitt viðbótarvernd á grundvelli 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, til þrautavara að þeim verði veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Fyrrgreindar ákvarðanir eru kærðar á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II.      Málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsóknir um alþjóðlega vernd hér á landi 29. september 2022 fyrir sig og börn sín. Kærandi kom í viðtl hjá Útlendingastofnun 1. nóvember 2022 og 15. júní 2023 og A kom í viðtal hjá Útlendingastofnun 11. maí 2023 ásamt löglærðum talsmanni sínum. Með ákvörðunum, dags. 16. október 2023, synjaði Útlendingastofnun kæranda og börnum hans um alþjóðlega vernd ásamt því að synja þeim um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Kæranda og börnum hans var jafnframt brottvísað frá landinu og honum ákvarðað endurkomubann til tveggja ára. Voru ofangreindar ákvarðanir kærðar til kærunefndar útlendingamála 31. október 2023. Kærunefnd barst greinargerð kæranda 14. nóvember 2023. Kærunefnd bárust viðbótarupplýsingar og viðbótargreinargerð frá kæranda 16. og 22. nóvember 2023. Í viðbótargreinargerð óskaði kærandi eftir því að fá að koma fyrir nefndina og tjá sig um efni málsins. Í ljósi frásagnar kæranda, skýrslna um heimaríki og annarra upplýsinga í málinu taldi kærunefnd ekki ástæðu til að gefa kæranda kost á að koma fyrir nefndina, sbr. 7. mgr. 8. gr. laga um útlendinga. Kærunefnd óskaði eftir frekari upplýsingum frá kæranda með tölvubréfi 2. janúar 2024. Með tölvubréfi 8. janúar 2024 bárust frekari upplýsingar og fylgigögn frá kæranda.

III.    Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að kærandi byggi umsókn sína um alþjóðlega vernd á því að hann sé í hættu í heimaríki sínu vegna almenns ástands og vegna fjárkúgunar og líflátshótana frá glæpagengi eða skæruliðum.

Niðurstaða ákvörðunar Útlendingastofnunar var sú að kærandi væri ekki flóttamaður og að honum skyldi synjað um alþjóðlega vernd á Íslandi samkvæmt ákvæðum 37. og 40. gr. laga um útlendinga. Kæranda var jafnframt synjað um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 74. gr. laga um útlendinga. Þá taldi stofnunin að ákvæði 42. gr. laga um útlendinga stæði endursendingu til heimaríkis ekki í vegi.

Í ákvörðun Útlendingastofnunar í máli A, barns kæranda, kom fram að hún hafi mætt í viðtal hjá Útlendingastofnun 11. maí 2023. A kvaðst vera fædd í Venesúela og vera níu ára gömul. Hún hafi flutt til Sýrlands þegar hún var fjögurra ára gömul. Hún hafi farið í leikskóla í Venesúela. Hún hafi ekki farið aftur til Venesúela og eigi ekki fjölskyldu þar. Hún hafi búið í Sweida í Sýrlandi ásamt fjölskyldu sinni og ömmu sinni. Hún eigi móðir í Sýrlandi sem hún sakni og hún óttist um öryggi móður sinnar. Í Sýrlandi hafi verið lítið öryggi og það hafi verið erfitt að vera í skóla. Hún hafi stundum mætt í skóla í fyrsta og upp í þriðja bekk. Hún hafi fengið að borða, hafi getað farið til læknis og átt föt til skiptanna. Í máli B kom fram að í ljósi frásagnar kæranda hafi ekki verið talið tilefni til að taka sjálfstætt viðtal við hann enda sé hann ungar að árum og framburður kæranda um málsástæður talinn fullnægjandi til að leggja til grundvallar ákvörðun án þess að taka viðtal við B. Fram kom að umsóknir barna kæranda væru einnig grundvallaðar á framburði föður þeirra og honum hefði verið synjað um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga. Í ákvörðun í máli föður hefði jafnframt verið tekin afstaða til aðstæðna barnanna og hvernig þær aðstæður horfi við einstökum þáttum ákvörðunarinnar. Var það niðurstaða Útlendingastofnunar með vísan til niðurstöðu í máli föður þeirra, að gættum ákvæðum samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, laga um útlendinga og barnaverndarlaga, að börnum kæranda væri ekki stefnt í hættu með því að fylgja föður sínum til heimaríkis. Börnum kæranda var vísað frá landinu.

Kæranda var brottvísað frá landinu og honum ákvarðað endurkomubann til tveggja ára. Fram kom að yfirgæfi kærandi landið sjálfviljugur innan frests sem honum hefði verið veittur yrði endurkomubann hans fellt niður. Börnum kæranda var brottvísað frá landinu.

Útlendingastofnun tilkynnti kæranda og börnum hans jafnframt að kæra frestaði réttaráhrifum ákvörðunarinnar, sbr. 1. mgr. 35. gr. laga um útlendinga.

IV.    Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð til kærunefndar vísaði kærandi til greinargerða sinna til Útlendingastofnunar, viðtala kæranda hjá stofnuninni 2. nóvember 2022 og 15. júní 2023 og viðtals A hjá Útlendingastofnun 15. maí 2023 hvað málavexti og aðstæður þeirra varðar. Í greinargerðum til Útlendingastofnunar kemur fram að kærandi sé venesúelskur og sýrlenskur ríkisborgari og að hann sé fæddur og uppalinn í Venesúela. Kærandi hafi flúið frá Venesúela til Sýrlands 9. janúar 2022 til að sækja börn sín. Hann hafi dvalið þar þar til hann flúði til Íslands 28. september 2022. Kæranda hafi reglulega verið hótað af glæpagengjum í Venesúela. Hann hafi verið krafin um háar fjárhæðir af glæpagengjum sem hann hafi hvorki getað né viljað greiða. Hann hafi einnig fengið hótanir um að börnum hans yrði rænt. Á leið í leikskóla eitt sinn hafi A, dóttur kæranda, næstum verið rænt af glæpagengi en kærandi hafi náð að flýja með hana inn í leikskólann. Umsækjandi hafi í kjölfarið farið með börn sín og eiginkonu til Sýrlands. Þá hafi eitt sinn verið brotist inn á heimili þeirra í Sýrlandi þar sem konan hans og börn hafi búið. Kærandi hafi farið til Sýrlands í janúar 2022, sótt börn sín og flúið til Íslands. Kærandi hafi fengið lán fyrir ferðalagi þeirra til Íslands og hafi fengið reglulegar hótanir frá einstaklingunum sem hann standi í skuld við í Sýrlandi. Þeir hafi hótað eiginkonu kæranda vegna skuldarinnar. Kærandi sé einnig að flýja almennt öryggisástand í Venesúela. Hann sé að flýja ofsóknir, fjárkúganir og hótanir glæpahópa. Kærandi telji þau hvorki geta fengið vernd yfirvalda í Sýrlandi né Venesúela. Í greinargerð til kærunefndar kemur fram að börn kæranda séu ríkisborgarar Sýrlands og Venesúela. A sé 10 ára gömul og hafi búið í Venesúela til fjögurra ára aldurs. B hafi verið um tveggja ára gamall þegar hann hafi flutt til Sýrlands. Þau hafi ekki búið í Venesúela síðan árið 2019. Í viðbótarupplýsingum sem bárust kærunefnd 8. janúar 2023 kemur fram að börn kæranda hafi flutt frá Venesúela til Sýrlands 23. maí 2019, þá hafi A verið tæplega sex ára gömul og B um þriggja ára gamall.

Í greinargerð til kærunefndar gerir kærandi athugasemdir við breytta stjórnsýsluframkvæmd Útlendingastofnunar. Þegar kærandi hafi lagt fram umsókn um alþjóðlega vernd fyrir sig og börnin sín hafi verið í gildi þekkt stjórnsýsluframkvæmd af hálfu Útlendingastofnunnar sem fól í sér að einstaklingar með venesúelskt ríkisfang eða venesúelskt og sýrlenskt ríkisfang hafi fengið sjálfkrafa veitta alþjóðlega vernd í viðtali eða strax í kjölfar viðtals hjá Útlendingastofnun. Framkvæmd sem hafi verið við líði frá miðjum júlí 2022 til mánaðarmóta október/nóvember 2022, þ.e. eftir að kærandi kom til Íslands og sótti um vernd. Kærandi hafi mætt í viðtal 2. nóvember 2023. Kæranda hafi ekki verið tilkynnt um breytta stjórnsýsluframkvæmd á meðferð umsókna umsækjenda frá Venesúela. Útlendingastofnun hafi tilkynnt um breytta stjórnsýsluframkvæmd 14. apríl 2023. Þá hafi Útlendingastofnun ekki tekið fyrir þá málsástæðu kæranda að stofnunin hafi ekki tilkynnt um breytta stjórnsýsluframkvæmd fyrr en í apríl 2023. Að mati kæranda beri því að senda mál hans til meðferðar á ný hjá Útlendingastofnun þar sem ákvörðun Útlendingastofnunnar brjóti í bága við 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

Kærandi mótmælir breyttri afgreiðslu Útlendingastofnunnar sem efnislega rangri. Telji kærunefnd útlendingamála mat Útlendingastofnunnar standast séu báðar stofnanir bundnar við málsmeðferðar- og efnisreglur stjórnsýsluréttarins, þ.á.m. meginregluna um réttmætar væntingar í tengslum við breytingar á stjórnsýsluframkvæmd og jafnræðisregluna. Kærandi gerir athugasemd við að Útlendingastofnun hafi ekki fjallað um málsástæða hans hvað varðar réttmætar væntingar. Kærandi vísar til tímasetninga á viðtölum umsækjanda frá Venesúela um alþjóðlega vernd, dagsetningu á breyttri framkvæmd Útlendingastofnunnar í málum þeirra og mismunandi meðferð umsókna umsækjenda sem komu til Íslands á svipuðum tíma. Kærandi telji að þar sem tæpast standi til að afturkalla vernd þeirra sem hafi fengið hana veitta í október 2022 hafi framkvæmd og úrlausn stjórnvalda að nokkru leyti verið háð tilviljunum, þ.e. hvort einstaklingar voru svo heppnir að hafa verið boðaðir í viðtal í október eða í nóvember líkt og kærandi. Kærandi telur að afgreiðsla Útlendingastofnunnar brjóti í bága við jafnræðisreglu stjórnsýsluréttarins.

Telji kærunefnd útlendingamála að breyta skuli stjórnsýsluframkvæmd líkt og Útlendingastofnun hafi gert byggir kærandi á því að sjónarmið um réttmætar væntingar og jafnræðisreglan standi því í vegi að slíkt gildi fyrir þá einstaklinga sem hafi sótt um alþjóðlega vernd á meðan fyrri stjórnsýsluframkvæmd hafi sannarlega verið við líði. Kærandi hafi sótt um alþjóðlega vernd 29. september 2022 þegar að framkvæmdin hafi verið sú að einstaklingar frá Venesúela hafi fengið sjálfkrafa vernd á Íslandi. Útlendingastofnun hafi sett fordæmi sem hafi orðið að venjubundinni stjórnsýsluframkvæmd um nokkurra mánaða skeið. Það hafi ekki verið fyrr en með fréttatilkynningu í apríl 2023 sem Útlendingastofnun hafi tilkynnt um breytta framkvæmd í kjölfar nýrra landaupplýsinga. Að mati kæranda hafi það verið gert með afturvirkum hætti. Kærandi vísar til ritsins Starfsskilyrði stjórnvalda máli sínu til stuðnings. Að mati kæranda geti hin breytta stjórnsýsluframkvæmd ekki tekið gildi gagnvart öðrum en þeir sem sóttu um alþjóðlega vernd eftir að breyting kom til framkvæmda þ.e. um mánaðarmótin október/nóvember 2022, eða í raun ekki fyrr en Útlendingastofnun hafi tilkynnt um breytta stjórnsýsluframkvæmd 14. apríl 2023.

Kærandi gerir athugasemd við rannsókn Útlendingastofnunnar hvað varðar breyttar aðstæður í Venesúela. Útlendingastofnun hafi ekki rannsakað hvort einstaklingar sem snúi til baka til Venesúela hafi kost á því að koma þar undir sig fótum. Að mati kæranda hafi Útlendingastofnun ekki litið til einstaklingsbundinna og félagslegra aðstæðna kæranda og barna hans við mat á því hvort þau geti snúið til baka til Venesúela. Börnin hafi ekki búið í Venesúela í að verða fimm ár, eigi ekkert bakland þar og móðir þeirra sé búsett í Sýrlandi. Niðurstaða Útlendingastofnunnar að börnin geti fylgt föður sínum til Venesúela sé þvert gegn grundvallarreglum barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og meginreglum barnaréttar.

Kærandi vísar til þess að stjórnvöld hafi að meginstefnu fylgt leiðbeiningum Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna fram til þessa varðandi endursendingar til annarra ríkja, einkum þegar börn eigi í hlut. Kærandi vísar til leiðbeininga Flóttamannastofnunar um umsóknir venesúelskra ríkisborgara um alþjóðlega vernd frá árinu 2019 og staðfestingu Flóttamannastofnunarinnar til kærunefndar útlendingamála 22. apríl 2022 um að afstaða hennar um endursendingar til Venesúela sé óbreytt. Kærandi gerir athugasemdir við þá niðurstöðu Útlendingastofnunnar að íslensk stjórnvöld séu ekki bundin af framangreindum leiðbeiningum og að þær séu einungis leiðbeinandi. Að mati kæranda þurfi breytta afstöðu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna, lagabreytingu eða að minnsta kosti önnur málefnalegri sjónarmið til að víkja frá framangreindum leiðbeiningum. Útlendingastofnun og kærunefnd útlendingamála hafi lagt leiðbeiningarnar til grundvallar í málum og þar með sett fordæmi, sem síðar hafi orðið að venju, þ.e. þekktri stjórnsýsluframkvæmd í málum af þessum toga. Þegar tiltekin framkvæmd hafi skapast eigi almennt að taka mið af fyrri framkvæmd og fordæmum þegar stjórnvöld taki ákvarðanir sínar. Kærandi vísar til úrskurða kærunefndar útlendingamála nr. 451/2021 og 231/2022 máli sínu til stuðnings. Fleira þurfi að koma til en „af því bara“ rök Útlendingastofnunar til að falla frá því að leggja framangreindar leiðbeiningar til grundvallar. Málefnaleg sjónarmið þurfi að koma til og einhvers konar efnisleg rök þess efnis að öryggisástand í Venesúela sé betra. Kærandi vísar til yfirlýsingar OAS ríkjanna frá 7. október 2022 og fréttatilkynninga frá Flóttamannstofnun Sameinuðu þjóðanna máli sínu til stuðnings. Hann telji þessar heimildir sýna að öryggisástand í Venesúela sé ekki á þeim stað að öryggi almennra borgara sé tryggt og að víkja beri frá leiðbeiningum Flóttamannastofnunnar. Á meðan að betri heimildir liggi ekki fyrir um að ástandið í Venesúela sé raunverulega orðið betra og Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna leggst almennt ekki lengur gegn endursendingu til Venesúela beri íslenskum stjórnvöldum að veita honum og börnum hans a.m.k. viðbótarvernd á grundvelli 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

Kærandi byggir á því að úrskurðir kærunefndar í málum nr. 525/2023, 526/2023 og 539/2023 hafi takmarkað fordæmisgildi þar sem þeir úrskurðir hafi varðað einstaklinga en ekki barnafjölskyldur á flótta.

Kærandi gerir annars vegar athugasemd við þá ályktun Útlendingastofnunar að hann hafi borið fyrir sig að óttast ótilgreinda glæpahópa en að hann geti reitt sig á vernd stjórnvalda í Venesúela. Kærandi telji að þrátt fyrir að hann óttist glæpahópa almennt hafi hann orðið fyrir barðinu á þeim. Það ástand sem sé í gangi í Venesúela þar sem glæpahópar hafi fengið að starfa óáreittir annað hvort í samvinnu við lögreglu eða vegna athafna- og viljaleysis stjórnvalda til að tryggja öryggi í landinu felur í sér ákveðna tegund mismununar í skilningi b. liðar 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Kærandi gerir hins vegar athugasemd við þá ályktun Útlendingastofnunar að kærandi hafi ekki getað sýnt fram á að gildar ástæður séu til þess að ætla að hann og börn hans séu í raunverulegri hættu í Venesúela og að stjórnvöld séu í stakk búin til að veita þeim viðeigandi vernd. Kærandi telji að Útlendingastofnun hafi þurft að rannsaka þennan þátt betur og að spyrja út í aðstæður kæranda til að geta dregið slíkar ályktanir.

Í viðbótargreinargerð vísar kærandi til frétta af flutningum íslenskra stjórnvalda á 180 Venesúelabúum til heimaríkis og þess að umræddir einstaklingar hafi verið hnepptir í varðhald og meinað að yfirgefa flugvöllinn af sjálfsdáðum. Þeir hafi svo verið neyddir upp í rútur í einhvers konar gæsluvarðhaldsúrræði. Vegabréf hafi verið tekin af öllum og heimferðastyrkur íslenskra stjórnvalda hafi verið tekin af flestum. Einstaklingar hafi verið knúnir gegn vilja sínum til að undirrita skjöl þess efnis að þeir hafi framið landráð, sem sé refsivert brot þar í landi. Teknar hafi verið myndir af farþegum með einhvers konar númeri, líkt og um fanganúmer hafi verið að ræða. Þrátt fyrir að umræddir farþegar hafi fengið vegabréf sín til baka og verið leystir út haldi þá stæði eftir að þeir eigi það sammerkt sem umsækjendur um alþjóðlega vernd að hafa játað á sig landráð og að stjórnvöld í Venesúela hafi skrásett og tekið myndir af þeim. Ekki sé hægt að álykta annað en að framkoma venesúelskra stjórnvalda gagnvart umræddum borgurum séu pólitískar ofsóknir. Að mati kæranda þurfi að spyrja kæranda nánar út í hvað hann óttist og hverja hann óttist verði honum gert að snúa til baka til Venesúela. Beri því að vísa máli kæranda til nýrrar meðferðar hjá Útlendingastofnun með vísan til 10. gr., 12 gr. og 2. tölul. 2. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 og meginmarkmiðs stjórnsýslukæru að aðilar máls geti treyst því að mál þeirra fái umfjöllun á tveimur stjórnsýslustigum. Með vísan til þessa telur kærandi að íslenskum stjórnvöldum beri að veita honum alþjóðlega vernd með vísan til 1. eða 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, í öllu falli á grundvelli mannúðarsjónarmiða með vísan í 74. gr. laganna. Til vara er byggt á því að mál hans verði vísað til nýrrar meðferðar hjá Útlendingastofnun en til þrautarvara að kærandi fái tækifæri til að koma fyrir kærunefnd útlendingamála og útskýra mál sitt frekar í ljósi þessara nýju upplýsinga.

V.      Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Lagagrundvöllur

Í máli þessu koma einkum til skoðunar ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

Auðkenni

Í ákvörðunum Útlendingastofnunar kemur fram að til að sanna á sér deili hafi kærandi framvísað venesúelsku vegabréfi fyrir sig og börn sín.

Við meðferð málsins hefur kærandi greint frá því að vera ríkisborgari Sýrlands. Lagði Útlendingastofnun það til grundvallar að kærandi væri venesúelskur og sýrlenskur ríkisborgari. Kærunefnd telur ekki tilefni til að draga framangreint í efa og leggur til grundvallar við úrlausn málsins að kærandi sé með ríkisfang bæði í Venesúela og Sýrlandi.

Kærandi hefur borið fyrir sig að þar sem eiginkona hans sé einungis með sýrlenskan ríkisborgararétt og búsett í Sýrlandi, þá geti hún ekki sameinast fjölskyldunni í Venesúela.

Í viðbótarupplýsingum sem bárust kærunefnd 8. janúar 2023 kemur fram að eiginkona kæranda hafi verið fædd í Sýrlandi. Hún hafi flutt til Venesúela árið 2012 og búið þar til 2019 þegar hún flutti með börnin til Sýrlands. Hún hafi ekki ríkisborgararétt í Venesúela en hún hafi verið með dvalarleyfiskírteini sem hún hafi fengið útgefið til eins árs í senn þegar hún bjó í Venesúela. Hún hafi ekki gilt dvalarleyfi í Venesúela þar sem skírteinið sé útrunnið. Kærandi greinir frá því að eiginkona sín hafi ekki heimild til að snúa til baka til Venesúela. Kærandi lagði fram gögn sem hann byggir sína afstöðu á. Þar er um að ræða umsókn eiginkonu hans um að ferðast erlendis frá Venesúela dagsett árið 21. maí 2019. Í skjali kemur fram að yfirgefi hún landið í meira en 90 daga ljúki ferli hennar um umsókn um endurnýjun á dvalarleyfi.

Í málum þar sem umsækjendur um alþjóðlega vernd hafa ríkisfang í fleiri en einu landi er horft til þess hvort umsækjandi geti fært sér í nyt vernd í einhverju af þeim ríkjum þar sem hann hefur ríkisfang. Ef svo er þá er ekki þörf á því að skoða aðstæður í öðrum ríkjum þar sem hann hefur ríkisfang. Í máli þessu hefur Útlendingastofnun skoðað aðstæður kæranda í Venesúela og komist að þeirri niðurstöðu að hann geti snúið aftur þangað og hafa aðstæður kæranda í Sýrlandi því ekki komið til skoðunar. Samkvæmt 1. mgr. 40. gr. laga um útlendinga á flóttamaður, skv. 37. gr. laganna, sem er hér á landi eða kemur hér að landi, samkvæmt umsókn rétt til að fá hér alþjóðlega vernd. Kærandi og börn hans eru stödd hér á landi og miðast niðurstaðan því aðeins við þeirra einstaklingsbundnu aðstæður og hafa sjónarmið um mögulega fjölskyldusameiningu þeirra við aðra fjölskyldumeðlimi því ekki áhrif á það hvort miðað verði við aðstæður þeirra í Venesúela eða Sýrlandi. Þó er rétt að taka fram að lausleg skoðun á lögum í Venesúela leiðir í ljós að makar venesúelskra ríkisborgara geta öðlast venesúelskan ríkisborgararétt eftir fimm ára hjúskap.

Þar sem kærandi og börn hans eru ríkisborgarar Venesúela og að teknu tilliti til framangreinds telur kærunefnd aðeins þörf á að fjalla um aðstæður kæranda í Venesúela, sbr. 2. mgr. A.-liðar 1. gr. Flóttamannasamnings Sameinuðu þjóðanna.

Réttarstaða barna kæranda

Staða barna á flótta ræðst af viðeigandi reglum í þjóðarétti og landsrétti. Í 22. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, sbr. lög nr. 19/2013, segir í fyrsta lagi að aðildarríki skuli gera viðeigandi ráðstafanir til að tryggja að barn sem leiti eftir réttarstöðu sem flóttamaður, eða sem talið sé flóttamaður samkvæmt viðeigandi reglum eða starfsháttum þjóðaréttar eða landslaga, fái, hvort sem það sé í fylgd foreldra eða annarra eða ekki, viðeigandi vernd og mannúðlega aðstoð við að nýta sér þau réttindi sem við eigi og kveðið sé á um í samningnum.

Í 2. mgr. 10. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 segir að ákvarðanir sem varði barn skuli teknar með hagsmuni þess að leiðarljósi, því tryggður réttur til að tjá skoðanir sínar í málum sem það varði og tekið tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Í 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga kemur fram að við ákvörðun sem sé háð mati stjórnvalds skuli huga að öryggi barns, velferð þess og félagslegum þroska og möguleika þess til að sameinast fjölskyldu sinni.

Sérstaklega er fjallað um mat stjórnvalda á umsóknum barna um alþjóðlega vernd í 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Þar segir að við mat á því hvort barn teljist flóttamaður samkvæmt lögunum skuli það sem barninu sé fyrir bestu haft að leiðarljósi. Við mat á því hvað barni sé fyrir bestu skuli stjórnvöld líta til möguleika barns á fjölskyldusameiningu, öryggis þess, velferðar og félagslegs þroska auk þess sem taka skuli tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Við ákvörðun í máli er varðar hagsmuni barns skuli stjórnvöld taka skriflega afstöðu til þessara atriða.

Almennt er viðurkennt að eðlilegur þroski barns sé best tryggður með því að vernda fjölskylduna. Sé ólögráða barn í fylgd annars eða beggja foreldra sinna eða annars úr fjölskyldunni sem hefur það á framfæri sínu og sá fer fram á réttarstöðu flóttamanns, ber að fara með málin í samræmi við meginregluna um einingu fjölskyldunnar. Ljóst er að börn þau sem hér um ræðir eru í fylgd föður síns og haldast úrskurðir fjölskyldunnar því í hendur.

Landaupplýsingar

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Venesúela, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:

  • 2022 Country Reports on Human Rights Practices: Venezuela (U.S. Department of State, 20. mars 2023);
  • 2021 Country Reports on Human Rights Practices: Venezuela (U.S. Department of State, 12. apríl 2022);
  • ‘All sides need to think about the future they want for Venezuela’, says UN human rights chief (vefsíða Sameinuðu þjóðanna, http://news.un.org/en/story/2023/01/1132957, 28. janúar 2023);
  • Amnesty International Report 2022/23: Venezuela (Amnesty International, 27. mars 2023);
  • Annual Report 2020 – Chapter IV.B: Venezuela (Inter-American Commission on Human Rights, 2021);
  • Annual Report 2022 – Chapter IV.B: Venezuela (Inter-American Commission on Human Rights, 2023);
  • Bolivarian Republic of Venezuela interim country strategic plan 2023-2025 (World Food Programme, 1. febrúar 2023);
  • Country Reports on Terrorism 2022: Venezuela (U.S. Department of State, 30. nóvember 2023);
  • Detailed findings of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela (United Nations. Human Rights Council, 15. september 2020);
  • Election Observation Mission – Venezuela 2021 (European Union, 22. febrúar 2022);
  • Fostering Impunity: The Impact of the Failure of the Prosecutor of the International Court to Open an Investigation into the Possible Commission of Crimes against Humanity in Venezuela (Organization of American States, OAS, 2. desember 2020);
  • Freedom in the World 2022 – Venezuela (Freedom House, 28. febrúar 2022);
  • Freedom in the World 2023 – Venezuela (Freedom House, 10. mars 2023);
  • General Country of Origin Information Report. Venezuela 2020 (Netherlands. Ministry of Foreign Affairs, júní 2020);
  • Global Childhood Report 2021 – The Toughest Place to be a Child (Save the Children, 2021);
  • Guidance Note on International Protection Considerations for Venezuelans – Update I (UNHCR, maí 2019);
  • Humanitarian Access overview (ACAPS, desember 2022);
  • Humanitarian Action for Children 2024 – Bolivarian Republic of Venezuela (UNICEF, 24. ágúst 2023);
  • Humanitarian Action for Children 2024 – Bolivarian Republic of Venezuela (UNICEF, 12. desember 2023);
  • Humanitære forhold (Landinfo, 2. mars 2023);
  • Human Rights Violations in the Bolivarian Republic of Venezuela: A Downward Spiral with No End in Sight (Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), júní 2018);
  • Independence of the justice system and access to justice in the Bolivarian Republic of Venezuela, including for violations of economic and social rights, and the situation of human rights in the Arco Minero del Orinoco region (United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 29. september 2020);
  • Informe Annual de Violencia 2022 (Observatorio Venezolano de Violencia, 29. desember 2022);
  • International Protection Needs of Venezuelan Nationals (Amnesty International, október 2023); 
  • Latest Asylum Trends (European Union Agency for Asylum, 17. maí 2023);
  • Outcomes of the investigation into allegations of possible violations of the human rights to life, liberty, and physical and moral Integrity in the Bolivarian Republic of Venezuela (Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 17. september 2020);
  • Quarterly Report April – June 2023 – Venezuela (The UN Refugee Agency, 8. ágúst 2023);
  • Report of the General Secretariat of the Organization of American States and the Panel of Independent International Experts on the Possible Commission of Crimes Against Humanity in Venezuela. Second Edition (Organization of American States, OAS, mars 2021);
  • Report of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela (Human Rights Council, 18. september 2023);
  • Rise of the Criminal Hybrid State in Venezuela (InSight Crime, júlí 2023);
  • RMNA 2023 – Refugee and Migrant Needs Analysis (Inter-Agency Coordination Platform for Refugees and Migrants from Venezuela, 11. september 2023);
  • RMRP 2023-2024: Regional Refugee and Migrant Response Plan (Inter-Agency Coordination Platform for Refugees and Migrants from Venezuela, 30. nóvember 2022);
  • RMRP 2024 Update: Regional Refugee and Migrant Response Plan (Inter-Agency Coordination Platform for Refugees and Migrants from Venezuela, 2. desember 2023);
  • Situation of human rights in the Bolivarian Republic of Venezuela (Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 16. júní 2021);
  • Situation of human rights in the Bolivarian Republic of Venezuela (The United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 4. júlí 2023);
  • Situation of Venezuelans who have returned and seek to return to their country in the context of COVID-19 (Organization of American States, OAS, september 2020);
  • Situation Report No. 1 – Venezuela (UNICEF, 30. júní 2023);
  • The World Factbook – Venezuela (Central Intelligence Agency, síðast uppfært 9. janúar 2024);
  • UNHCR Response – Venezuela, January – June 2023 (The UN Refugee Agency, 8. ágúst 2023);
  • UNHCR Venezuela Annual Report 2022 (The UN Refugee Agency, 8. ágúst 2023);
  • Update on Venezuela by High Commissioner Türk (United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 5. júlí 2023);
  • Venezuela (Britannica, síðast uppfært 14. janúar 2024);
  • Venezuela: Availability of health care, including for persons with disabilities and older persons; treatment of persons with disabilities and older persons within the healthcare system (2021-January 2023) (Immigration and Refugee Board of Canada, 13. febrúar 2023);
  • Venezuela Country Focus (European Asylum Support Office, EASO, ágúst 2020);
  • Venezuela Country Focus (European Union Agency for Asylum, EUAA, nóvember 2023;
  • Venezuela Country Report 2022 (Bertelsmann Stiftung, 2022);
  • Venezuela: Humanitarian Action, (OCHA, 30. nóvember 2022);
  • Venezuela: Humanitarian Response Plan 2022-2023 (OCHA, 7. september 2022);
  • Venezuela in 2022: Building solutions with communities affected by armed violence (International Committee of the Red Cross, 6. janúar 2023);
  • Venezuela: Joint Statement on Venezuela Negotiation in Mexico (The Diplomatic Service of the European Union, 26. nóvember 2022);
  • Venezuela: Los Colectivos (Landinfo, 1. október 2019);
  • Venezuela Organized Crime Observatory (InSightCrime, síðast uppfært 11. janúar 2024);
  • Venezuela: Overview of U.S. Sanctions (Congressional Research Service, 30. nóvember 2022);
  • Venezuela: Overview of U.S Sanctions (Congressional Research Service, 8. ágúst 2023);
  • Venezuela: Political Crisis and U.S Policy (Congressional Research Service, 1. september 2023);
  • Venezuela: Progress Report March – April 2023 (OCHA, 31. maí 2023);
  • Venezuela Protection Analysis Update (Global Protection Cluster, september 2023);
  • Venezuela’s Humanitarian Emergency (Human Rights Watch, 4. apríl 2019);
  • Venezuela: Sikkerhetssituasjonen for sivilbefolkningen (Landinfo, 14. apríl 2020);
  • Venezuela Situation (UNHCR, janúar 2023);
  • Venezuela Situation Fact Sheet (UNHCR, 8. mars 2023);
  • Venezuela: Tidligere og nåværende protestaksjoner, og retursituasjonen for personer som deltok i de store demonstrasjonene i 2017-2019 (Landinfo, 30. maí 2023);
  • Venezuela: Treatment of citizens by the authorities based on whether or not they participate in anti-government protests, including whether some are more targeted than others and for what reasons; whether access to social security programs may be affected by political activities (2017-January 2021) (Immigration and Refugee Board of Canada, 3. febrúar 2021);
  • Venezuela: UN Experts warn of persisting attacks on civil society, media and trade union leaders (UNCHR, 22. mars 2023);
  • Venezuela: Utsatte grupper og reaksjoner fra myndighetene (Landinfo, 11. júní 2020);
  • Venezuela: Ytringsfrihet og kritiske ytringer i sosiale medier (Landinfo, 28. júní 2023);
  • What’s Ahead for Venezuela’s Crisis (World Politics Review, 20. apríl 2023);
  • World Report 2023 – Venezuela (Human Rights Watch, 12. janúar 2023) og
  • World Report 2024 – Venezuela (Human Rights Watch, 11. janúar 2024).

Venesúela er stjórnarskrárbundið lýðveldi með rúmlega 30 milljónir íbúa. Í landinu aðhyllast um 96% íbúa kristna trú, þar af meirihlutinn rómversk-kaþólska trú. Hinn 15. nóvember 1945 gerðist Venesúela aðili að Sameinuðu þjóðunum. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi ásamt alþjóðasamningi um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi árið 1978. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um afnám allrar mismununar gegn konum árið 1983 og samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri og vanvirðandi meðferð eða refsingu árið 1991.

Í framangreindum skýrslum, þ. á m. skýrslum bandarísku utanríkisþjónustunnar frá 2022 og 2023, bandarísku leyniþjónustunnar frá 2023 og Human Rights Watch frá 2023, kemur fram að Venesúela sé fjölflokka lýðræðisríki að nafninu til. Nicolás Maduro, forseti landsins frá árinu 2013, hafi hins vegar styrkt völd sín jafnt og þétt og um leið veikt löggjafar-, framkvæmdar- og dómsvald landsins. Stjórnarkreppa hafi ríkt í Venesúela frá árinu 2019. Forsetatíð Nicolás Maduro hafi lokið 10. janúar 2019, en hann hafi neitað að afsala sér völdum og haldið því fram að hann hafi unnið sigur í forsetakosningum árið áður. Niðurstöður kosninganna, sem hafi sætt mikilli gagnrýni og hvorki talist óháðar né sanngjarnar, hafi verið ógiltar af venesúelska þinginu. Hinn 23. janúar 2019 hafi stjórnarandstaðan lýst Juan Guaido, forseta venesúelska þingsins, forseta til bráðabirgða. Guaido hafi haft fullt stjórnskipulegt umboð frá þinginu og yfir 50 ríki hafi viðurkennt lögmæti hans sem bráðabirgðaforseta, þ. á m. Bandaríkin og flest ríki innan Evrópusambandsins. Þrátt fyrir það hafi Maduro farið með stjórn allra ríkisstofnana landsins auk þess sem hann hafi notið stuðnings öryggissveita. Guaido hafi því ekki getað beitt valdheimildum sínum og aðeins haft yfirráð yfir nokkrum sendiráðum og eignum Venesúela erlendis. Samkvæmt skýrslu Evrópusambandsins frá árinu 2022 hefur stjórnarandstaðan sniðgengið þrennar kosningar í landinu frá árinu 2015 vegna skorts á lýðræðislegum skilyrðum en hafi árið 2021 verið boðið að sitja í kjörstjórn sveitastjórnarkosninga og hafi sendinefnd á vegum Evrópusambandsins verið boðið að fara með kosningaeftirlit þeirra. Stjórnarandstaðan hafi tekið þátt í kosningunum en framkvæmd þeirra hafi hins vegar verið ábótavant. Í nóvember 2022 hafi samningaviðræður milli stjórnarandstöðunnar og ríkisstjórnar Maduro hafist að nýju en þær hafi legið niðri síðan í október 2021. Samningsaðilar hafi komist að samkomulagi um að bæta mannúðarástand í landinu með stofnun sjóðs á vegum Sameinuðu þjóðanna sem sótt gæti fjármagn í frystar eignir Venesúela erlendis. Í desember 2022 í kjölfar viðræðnanna hafi stjórnaraðstaðan dregið stuðning sinn við Guaido til baka og leyst upp bráðabirgðastjórn hans í landinu þar sem honum hafi mistekist að ná þeim yfirráðum sem stefnt hafi verið að. Markmið stjórnarandstöðunnar sé enn að koma Maduro frá völdum en hún telji Guaido ekki réttan fulltrúa sinn. Á fundi í Barbados 17. október 2023 hafi ríkisstjórn Venesúela og stjórnarandstaðan samþykkt að halda forsetakosningar í Venesúela á seinni hluta ársins 2024. Alþjóðlegir eftirlitsmenn hafi verið viðstaddir fundinn og hafi samningurinn verið undirritaður með milligöngu Noregs. Samkvæmt samningnum sé einnig gert ráð fyrir að Evrópusambandið og Sameinuðu þjóðirnar hafi eftirlit með kosningunum.Hinn 22. október 2023 hafi stjórnarandstaðan valið Maria Corina Machado sem fulltrúa sinn í komandi forsetakosningum. Hinn 30. október 2023 hafi Hæstiréttur Venesúela þó ógilt þá niðurstöðu og frestað forkosningum stjórnarandstöðunnar vegna mögulegs lögbrots.

Í skýrslu EASO frá 2020 sem uppfærð var með skýrslu EUAA frá 2023 kemur fram að fljótlega eftir að Maduro hafi orðið forseti árið 2013 hafi olíuverð farið hríðlækkandi. Olía hafi lengi verið helsta tekjulind Venesúela og hafi um helmingur af árlegum tekjum ríkissjóðs komið til vegna olíuvinnslu. Lækkun olíuverðs hafi, ásamt efnahagsstefnu stjórnvalda og íþyngjandi regluverki er snúi að atvinnulífinu, átt þátt í niðursveiflu hagkerfisins í Venesúela. Óðaverðbólga og kreppa hafi dregið verulega úr kaupmætti almennings í landinu og orsakað skort á matvælum, lyfjum og öðrum nauðsynjavörum. Þrátt fyrir að lágmarkslaun hafi verið hækkuð hafi meginþorri almennings ekki getað keypt nauðsynjavörur eða framfleytt sér án fjárhagsaðstoðar. Þá kemur fram að öll aðstoð sé veitt í gegnum föðurlandskerfið og föðurlandskortið (s. sistema Patria, Carnet de la Patria) en kortið sé forsenda þess að geta fengið opinbera aðstoð, m.a. matvælaaðstoð í formi svokallaðra CLAP matarpakka (s. Comité Local de Abastecimiento y Producción). Kerfið hafi verið notað til að fylgjast með íbúum og upp hafi komið tilvik þar sem einstaklingum hafi verið neitað um aðstoð vegna þess að þeir hafi verið taldir á móti ríkisstjórn landsins. Þannig hafi föðurlandskortið verið verkfæri til samfélagsstjórnunar í gegnum matvæla- og fjárhagsaðstoð. Árið 2022 hafi ríkisstjórn Venesúela hafið átak til að bregðast við þörfum og vandamálum sem hafi komið upp í samfélaginu. Einstaklingar geti hlaðið niður smáforriti, svokölluðu VenApp, sem gerir þeim kleift að tilkynna beint til stjórnvalda ef bilun verður í veitingu grunnþjónustu, s.s. vatns, gas eða rafmagns. Einstaklingar sem hyggist nota slíkt smáforrit þurfa að gefa samþykki fyrir því að forritið fái aðgang að persónuupplýsingum og staðsetningu notanda og sé því einnig tæki sem notað sé til að fylgjast með íbúum. Í skýrslu Human Rights Watch frá árinu 2023 kemur fram að flestir íbúar Venesúela séu í þörf fyrir aðstoð vegna skorts á mat, vatni, heilbrigðisþjónustu og hreinlæti. Rúmlega sjö milljónir venesúelskra ríkisborgara hafi lagt á flótta eða séu á vergangi vegna ástandsins í landinu og venesúelska flóttamannakrísan sé talin eitt alvarlegasta vandamál nútímans og fólksflutningarnir þeir fjölmennustu í nútímasögu Suður-Ameríku.

Í skýrslu Landinfo frá mars 2023 kemur fram að árið 2021 hafi aukning orðið í olíuframleiðslu í landinu, en Maduro hafi slakað á þeim ströngu reglum sem gilt höfðu um gjaldeyrismál og gefið leyfi fyrir auknum viðskiptum í erlendri mynt. Í kjölfar þess hafi hagkerfið farið að vaxa að nýju eftir að hafa verið í frjálsu falli síðustu ár og talið sé að hagkerfið hafi styrkst um 15% árið 2022. Fátæktin sé þó enn mikil, sérstaklega hjá þeim sem ekki hafi aðgang að erlendum gjaldeyri. Þá kemur fram að efnahagsástand í landinu hafi farið batnandi síðan árið 2019 þrátt fyrir að enn sé langt í land. Í kjölfar afléttinga ýmissa innflutningshafta og lækkunar verðbólgu hafi framboð af matvælum og lyfjum aukist. Samt sem áður hafi fæstir efni á að nálgast slíkt sökum lágra launa og hækkandi matvöruverðs. Flestir sem yfirgefi landið geri það af efnahagslegum ástæðum. Ástandið í Karakas sé mun betra en á öðrum svæðum þar sem rafmagnsleysi hafi áhrif á aðgengi fólks að bæði rafmagni og rennandi vatni. Samkvæmt skýrslunni hafi um 50% heimila í Venesúela verið undir fátæktarmörkum árið 2022 samanborið við 65% árið 2021 og 87% árið 2017.

Í skýrslu Freedom House frá 2021 kemur fram að strangar hömlur hafi verið settar á grundvallarréttindi venesúelskra ríkisborgara, þ. á m. á tjáningar-, samkomu- og félagafrelsi. Stjórnarandstæðingar, blaðamenn, aðgerðarsinnar, mótmælendur og einstaklingar sem taldir séu andsnúnir ríkisstjórninni hafi verið skotmörk yfirvalda og hafi m.a. þurft að sæta handahófskenndum rannsóknum og handtökum. Í skýrslu Freedom House frá 2023 kemur fram að yfirvöld í landinu hafi takmarkað borgaraleg réttindi og sótt til saka pólitíska andstæðinga sína án réttlátrar málsmeðferðar. Þrátt fyrir að efnahagur landsins hafi náð vexti á ný eftir margra ára samdrátt sé enn mannúðarkrísa í landinu sem drifin sé af pólitísku ójafnvægi. Í skýrslu Human Right Watch frá 2023 kemur fram að ríkisstjórn landsins hafi fangelsað pólitíska andstæðinga sína. Að minnsta kosti 114 pólitískir fangar hafi dvalið í meira en þrjú ár í gæsluvarðhaldi sem samræmist ekki hegningarlögum landsins. Öryggissveitir og vopnaðir hópar sem styðji ríkisstjórnina hafi ítrekað ráðist á mótmælendur með ofbeldisfullum árásum, barsmíðum og skotárásum. Dómskerfi landsins hafi hætt að starfa sem óháð ríkisvald árið 2004 og hafi dómsmálayfirvöld verið samsek venesúelskum yfirvöldum í misnotkun á kerfinu, t.a.m. með því að gefa út afturvirkar heimildir til handtöku og fyrirskipa gæsluvarðhöld á grundvelli ónægra sönnunargagna. Í samantekt rannsóknarnefndar á vegum mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna frá 22. mars 2023 kemur m.a. fram að yfirvöld handtaki enn pólitíska andstæðinga sína, hindri mótmæli verkalýðsfélaga og loki fjölmiðlum. Varðhald og pyndingar af hálfu stjórnvalda hindri tjáningarfrelsi og réttinn til mótmæla. Handahófskennd gæsluvarðhöld af pólitískum ástæðum séu enn áhyggjuefni og séu að minnsta kosti 282 einstaklingar enn í haldi, þ. á m. óbreyttir borgarar og hermenn.

Í skýrslu EASO frá 2020 sem uppfærð var með skýrslu EUAA frá 2023 kemur fram að morðtíðni í Venesúela sé ein sú hæsta í Mið- og Suður-Ameríku. Frá 2018 til 2019 hafi morðum fækkað en það sé ekki til marks um að ofbeldi í landinu hafi farið minnkandi. Vopnahópum hafi tekist að viðhalda yfirráðasvæðum sínum og komið á fót eiginlegum smáríkjum (e. micro-states) innan Venesúela sem hafi gert það að verkum að dregið hafi úr átökum milli stríðandi fylkinga. Þá megi rekja fækkun morða til aukinnar fátæktar og flutnings fólks úr landi. Mannránum hafi einnig fækkað og megi rekja það til erfiðleika við greiðslu lausnargjalda vegna óðaverðbólgu.  Á undanförnum þremur árum hafi hins vegar þeim glæpum sem dregið hafði úr á liðnum árum, s.s. ránum, mannránum og fjárkúgun, fjölgað aftur. Það megi einkum rekja til lögleiðingu og greiðara aðgengis að erlendum gjaldmiðli í Venesúela. Þá hafi aukning á notkun Bandaríkjadals í efnahagskerfi Venesúela leitt til þess að smærri, staðbundnari glæpahópar hafi horfið og runnið saman við stærri glæpasamtök. Venezuelan Observatory of Violence gefur árlega út skýrslu um glæpatíðni í landinu. Í skýrslu þeirra frá desember 2020 kemur fram að morðtíðni í landinu það ár hafi verið um 45,6 morð á hverja hundrað þúsund íbúa. Þá hafi orðið aukning í morðum af hálfu yfirvalda en árið 2020 hafi verið fyrsta árið, frá árinu 2016, þar sem skráð morð af hálfu lögreglu hafi verið fleiri en af hálfu annarra gerenda. Í skýrslu þeirra frá desember 2021 kemur fram að morðtíðni það ár hafi verið 40,9 morð á hverja hundrað þúsund íbúa og a.m.k. 6,3 morð hafi verið framin á hverjum degi af hálfu yfirvalda. Aukning hafi orðið á morðum sem skráð séu óupplýst og því óvíst um gerendur og þá hafi orðið aukning í óútskýrðum mannshvörfum, eða um 4,4 mannshvörf á dag árið 2021. Í skýrslu þeirra frá desember 2022 kemur fram að morðtíðni fari lækkandi en tíðni síðasta árs hafi verið um 40,4 morð á hverja hundrað þúsund íbúa.

Samkvæmt framangreindum skýrslum, m.a. skýrslu bandarísku leyniþjónustunnar (CIA) frá árinu 2023 og skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2022, heyra lögreglu- og öryggismál landsins m.a. undir alríkislögregluna, herlögregluna, svæðisbundin lögregluembætti og lögregluembætti sveitarfélaga. Um 45 þúsund lögreglumenn starfi hjá alríkislögreglunni en yfirvöld hafi gefið það út að stefnt sé að því að fjölga þeim í 100 þúsund árið 2024. Í fyrrnefndri skýrslu bandarísku utanríkisþjónustunnar kemur fram að stjórn yfirvalda yfir öryggissveitum landsins hafi minnkað undanfarin ár. Hin ólögmæta og sífellt óvinsælli ríkisstjórn Maduro hafi treyst á hersveitir-, leyniþjónustu og vopnahópa (Colectívos) til þess að veikja stöðu stjórnarandstæðinga og draga úr vilja almennings til mótmæla. Í skýrslu Landinfo frá 2019 kemur fram að Colectívos sé sameiginlegt heiti yfir vopnahópa sem starfi í Venesúela og styðji ríkisstjórnina. Colectívos, sem samanstandi af allt að 100 mismunandi vopnahópum, séu með viðveru um land allt. Óljóst sé að hve miklu leyti vopnahópunum sé stjórnað af yfirvöldum en Colectívos hafi verið þátttakendur í aðgerðum yfirvalda gegn mótmælendum og stjórnarandstæðingum ríkisstjórnar Maduro. Í niðurstöðuskýrslu óháðrar nefndar á vegum mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna (e. Detailed findings of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela) frá 2020 er fjallað um ítarlega rannsókn á aðgerðum yfirvalda í Venesúela frá árinu 2014. Nefndin komst að þeirri niðurstöðu að yfirvöld í Venesúela og vopnahópar á þeirra vegum hafi framið svívirðilega glæpi, þ. á m. kerfisbundnar pyndingar og aftökur án dóms og laga, sem geti fallið undir skilgreiningu á glæpum gegn mannkyni (e. crimes against humanity). Meirihluti glæpanna hafi verið hluti af kerfisbundnu ofbeldi gegn almenningi í samræmi við eða til að framfylgja stefnu stjórnvalda, m.a. í því skyni að þagga niður, letja eða brjóta á bak aftur andstöðu tiltekinna einstaklinga við ríkisstjórn Maduro og að berjast gegn glæpum. Þá hafi háttsettir embættismenn og herforingjar haft vitneskju um glæpina og ekki gripið til aðgerða til að sporna gegn þeim. Samtök Ameríkuríkja (e. Organization of American States, OAS) hafa í skýrslum sínum frá 2020 og 2021 komist að sömu niðurstöðu. Í skýrslunum kemur m.a. fram að umfang og alvarleiki glæpa gegn mannkyni í Venesúela hafi aukist frá því að fyrri skýrsla samtakanna hafi verið gefin út árið 2018. Skráð tilvik aftaka án dóms og laga séu yfir 18 þúsund og fjöldi einstaklinga hafi þurft að sæta handahófskenndum handtökum og varðhöldum. Þvinguð mannshvörf hafi verið tíð og yfirvöld hafi beitt ýmsum aðferðum við pyndingar, s.s. kynferðislegu ofbeldi. Samkvæmt skýrslu Human Rights Watch frá 2023 gaf saksóknari alþjóðlega sakamáladómstólsins (International Criminal Court (ICC)) út yfirlýsingu í nóvember 2021 um þá ákvörðun sína að hefja rannsókn á ætluðum glæpum gegn mannkyni sem framdir hafi verið í Venesúela. Í mars 2022 hafi saksóknarinn fengið heimild til að opna skrifstofu sína í Karakas og samkvæmt skýrslu mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna frá júní 2022 hefur dregið verulega úr dauðsföllum í aðgerðum öryggissveita þó nefndin telji að slíkar aðgerðir hafi haldið áfram.

Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2023 kemur fram að konur njóti sömu réttinda og karlar samkvæmt stjórnarskrá landsins. Konur og karlar séu lagalega jöfn í hjónabandi, lögin kveði á um jafnrétti kynjanna á vinnumarkaði og vinnuveitendur megi ekki mismuna konum varðandi laun eða vinnu. Engu að síður sé ójöfnuður á vinnumarkaði viðvarandi og lögum ekki framfylgt. Í skýrslunni kemur einnig fram að dómsmálaráðherra Venesúela hafi sett á fót stofnun sem taki á móti kvörtunum vegna ofbeldis gegn konum og börnum. Ráðherra hafi sett saman teymi lögfræðinga, geðlækna og annarra sérfræðinga sem eingöngu hafi sinnt málum er tengjast morðum á konum, kynbundnu ofbeldi og öðrum glæpum gegn konum. Nauðgun sé refsiverð í Venesúela og geti varðað fangelsi allt að 14 árum. Þá kveði lögin á um tuttugu til þrjátíu ára fangelsisrefsingu fyrir morð á konum og refsingu fyrir líkamlegt, kynferðislegt eða andlegt ofbeldi. Lögreglan í landinu sé þó treg við að grípa inn í og koma í veg fyrir ofbeldi í samböndum og sé ekki þjálfuð til að takast á við slík mál. Þrátt fyrir að lög í landinu kveði á um refsingar fyrir ofbeldi gegn konum sé lögunum sjaldan fylgt í raun.

Venesúelsk stjórnvöld fullgiltu samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins árið 1990. Í umfjöllun um Venesúela á vefsíðu Britannica kemur fram að skólaskylda sé í landinu og að gjaldfrjáls grunnskólamenntun sé í boði fyrir börn á aldrinum sex til 15 ára. Tveggja ára framhaldsskólanám (e. Secondary education) sé einnig gjaldfrjálst en ekki skyldubundið. Meira en 90% Venesúelabúa 15 ára og eldri séu læsir. Mikill meirihluti venesúelskra barna séu skráðir í skóla en næstum helmingur fullorðinna hafi enga framhaldsskólamenntun og fjöldi hafi ekki hlotið formlega skólagöngu. Venesúelabúar sem tilheyri milli og efri stéttum þjóðfélagsins sendi börn sín gjarnan í einkarekna grunn- og framhaldsskóla. Samkvæmt skýrslu UNICEF frá júní 2023 hafi aukin mótmæli í landinu á fyrri helmingi ársins haft áhrif á menntastofnanir þar sem kennarar hafi í auknum mæli tekið þátt í mótmælum. Sé kennsla í sumum skólum landsins því gloppótt. Kennarasamband Venesúela hafi varað við aðferð sem kallist „horario mosaico“ sem sumir skólar hafi innleitt en í henni felist að kennarar haldi uppi kennslu einungis tvo daga vikunnar til að þeim gefist tími til að sinna öðrum tekjuskapandi störfum. Í skýrslu UNICEF frá desember 2023 kemur fram að um 900 þúsund börn séu utan skóla í landinu og að rúm ein milljón barna eigi á hættu að flosna upp úr námi. Samkvæmt skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2023 leggja venesúelsk lög bann við verstu tegundum barnaþrælkunar og er börnum yngri en 14 ára meinað að stunda atvinnu. Börnum á aldrinum 14 til 18 ára sé einungis heimilt að stunda atvinnu með leyfi forsjáraðila og þá að hámarki 30 klukkustundir á viku. Stjórnvöld hafi þó ekki framfylgt lögunum með skilvirkum hætti og hafi hátt hlutfall barna hætt í skóla til að fara að vinna. Í skýrslu Amnesty International frá október 2023 kemur fram að börn séu meðal þeirra sem hafi sérstaklega orðið fyrir barðinu á skertu aðgengi að heilbrigðisþjónustu og læknismeðferð, en árið 2022 hafi tæp 80% barnalæknastofa verið búnar að loka. Í skýrslu Barnaheilla (e. Save the Children) frá árinu 2021 kemur fram að samkvæmt mælingum samtakanna á því hvar aðstæður barna séu hvað erfiðastar sé Venesúela í 145. sæti af 186 ríkjum.

Samkvæmt skýrslum mannréttindastofnunar Sameinuðu þjóðanna (e. OHCHR), innflytjenda- og flóttamannanefndar Kanada og Landinfo frá 2023 eru bæði opinberar og einkareknar heilbrigðisstofnanir í Venesúela en aðeins 3% íbúa Venesúela hafi tök á að nýta sér þjónustu einkarekinna heilbrigðisstofnana. Yfir 200 opinber sjúkrahús og fjöldi heilsugæslustöðva séu í landinu en þar hafi skort allar helstu nauðsynjar til að sinna sjúklingum síðustu ár. Í framangreindum skýrslum, þ. á m. skýrslum Human Rights Watch frá 2022 og 2019 og EASO frá 2020 sem uppfærð var með skýrslu EUAA frá 2023, kemur fram að frá árinu 2012 hafi heilbrigðisþjónusta í landinu farið versnandi. Innviðir heilbrigðiskerfisins séu veikburða og skortur sé á heilbrigðisvörum og lyfjum. Árið 2022 hafi stjórnvöld áfram stutt við aðgengi að heilbrigðisþjónustu og lyfjum á fátækustu svæðum landsins en aðbúnaði sé ábótavant og skortur sé á heilbrigðisstarfsfólki sem hafi flúið land í miklum mæli. Fjölda sjúkrahúsa hafi verið lokað undanfarin ár og afkastageta þeirra sjúkrahúsa sem enn séu starfrækt hafi verið takmörkuð, t.a.m. hafi mörg þeirra ekki haft reglulegan aðgang að rafmagni og vatni. Umfang vandans liggi ekki fyrir vegna vanrækslu yfirvalda við birtingu heilbrigðisupplýsinga. Þó liggi fyrir að barnadauði og útbreiðsla sjúkdóma sem hefði mátt koma í veg fyrir með bólusetningum, s.s. barnaveiki, malaríu og mislinga, hafi aukist verulega á undanförnum árum. Heilbrigðiskerfið í Venesúela hafi verið illa undirbúið fyrir Covid-19 faraldurinn og hafi einstaklingar sem greinst hafi með sjúkdóminn ekki fengið viðeigandi meðferð. Þá hafi læknar og annað heilbrigðisstarfsfólk sætt hótunum og jafnvel handtökum af hálfu yfirvalda hafi þau tjáð skoðanir sínar opinberlega á stöðu heilbrigðiskerfisins og aðgerðarleysi stjórnvalda í þeim málum. Í skýrslu Human Rights Watch frá árinu 2023 kemur fram að Venesúela standi enn frammi fyrir alvarlegri mannúðarkrísu þar sem milljónir hafi ekki aðgang að fullnægjandi heilbrigðisþjónustu og næringu. Í mars 2023 hafi rúmlega átta milljónir alvarlega veikra einstaklinga átt í erfiðleikum með að fá heilbrigðisþjónustu í Venesúela og meira en níu milljónir sem þurft hafi á lyfjum eða heilbrigðisþjónustu að halda hafi ekki haft efni á að nálgast slíkt. Aðgangur að drykkjarvatni og hreinlætisaðstöðu hafi dregist saman frá árinu 2021 til ársins 2022 sem m.a. hafi leitt til þess að rúmlega fjórar milljónir séu í mikilli þörf fyrir drykkjarvatn. Í skýrslu Landinfo frá 2023 kemur fram að  Venesúela hafi á undanförnum árum glímt við mikinn lyfjaskort en að aðgengi hafi farið batnandi frá árinu 2019. Aðgengi sé að lyfjum fyrir þá sem geta greitt fyrir það en margir fá lyf send frá útlöndum.

Í framangreindum skýrslum, m.a. skýrslu hollenska utanríkisráðuneytisins frá 2020, kemur fram að einstaklingar af arabískum uppruna í Venesúela séu um 1,6 milljón og eigi aðallega rætur sínar að rekja til Sýrlands og Líbanon. Þá kemur fram að heimildir bendi til þess að venesúelskir ríkisborgarar af arabískum uppruna fái ekki að neinu leyti öðruvísi meðferð en aðrir í samfélaginu og tilheyri öllum stéttum samfélagsins.

Frá árinu 2021 hefur hagkerfi landsins farið að vaxa að nýju og í skýrslu mannréttindastofnunar Sameinuðu þjóðanna frá september 2023 kemur fram að hagvöxtur hafi aukist um 17,3% árið 2022. Þrátt fyrir hagvöxt hafi önnur atvik og aðstæður áfram haft neikvæð áhrif á nauðsynlega almannaþjónustu, s.s. samgöngur, menntun og heilbrigðisþjónustu. Í framangreindri skýrslu Human Right Watch frá árinu 2023 kemur fram að nýkjörinn forseti Kólumbíu hafi tilkynnt að hann hygðist opna landamærin að Venesúela að nýju og hafi skipað sendiherra sem tekið hafi við embætti í Karakas 29. ágúst 2022. Í apríl 2022 hafi argentínsk yfirvöld tilkynnt áform sín um að endurnýja stjórnmálasamband við Venesúela. Í mars og júní 2022 hafi Bandaríkin sent opinberar sendinefndir til Venesúela í fyrsta sinn í mörg ár til samræðna vegna áhuga stjórnar landsins á að opna fyrir olíuviðskipti við Venesúela að nýju. Í nóvember 2022 hafi orðið vendipunktur í stjórnarfari Venesúela þegar ríkisstjórn Maduro og stjórnarandstaðan hafi undirritað samkomulag um að auka mannúðaraðstoð í landinu. Samkomulagið kveði á um úthlutun þriggja milljarða Bandaríkjadala til velferðarmála, m.a. til að tryggja betri heilbrigðisþjónustu, fæðuöryggi og rafmagn í landinu, en fram að þessum tíma hafi Maduro, forseti landsins, verið tregur við að þiggja mannúðaraðstoð þrátt fyrir þrýsting frá Bandaríkjunum og öðrum löndum. Þá hafi samningsaðilar samþykkt að halda viðræðum áfram um hin ýmsu mannréttindamál og ákvarða nákvæma tímasetningu kosninga í landinu árið 2024. Bandaríkin hafi í nóvember 2022 dregið úr viðskiptaþvingunum í kjölfar samningaviðræðna ríkisstjórnar landsins og stjórnarandstöðunnar og hafi heimilað bandarísku fyrirtæki að hefja að nýju vinnslu á olíu frá Venesúela og innflutning á henni til Bandaríkjanna. Samkvæmt sameiginlegri yfirlýsingu Evrópusambandsins, Bandaríkjanna, Kanada og Bretlands 26. nóvember 2022 hyggjast ríkin endurskoða viðskiptaþvinganir sínar verði sýnt fram á lýðræðislegar umbætur í Venesúela.

Samkvæmt frétt á heimasíðu Sameinuðu þjóðanna fór mannréttindafulltrúi Sameinuðu þjóðanna, Volker Türk, í opinbera heimsókn til Venesúela í janúar 2023. Türk fundaði með Maduro forseta landsins sem lýsti opinberlega yfir vilja til að vinna að því að bæta réttarkerfi landsins. Türk hafi þá boðið fram stuðning og sérfræðiþekkingu til að fylgja því eftir. Türk hafi einnig hitt varaforseta landsins, háttsetta embættismenn, yfirmann dómstóla, stjórnarandstöðu og fleiri háttsetta aðila sem allir hafi viðurkennt þörfina á umbótum í landinu. Ítrekaði Türk þá tilmæli sín til aðildarríkja Sameinuðu þjóðanna um að fresta eða aflétta ráðstöfunum sem grafi undan mannréttindum í landinu. Þá hafi Türk hvatt yfirvöld í Venesúela til að efla samstarf sitt við stofnanir Sameinuðu þjóðanna til að tryggja frjálsa, örugga og virðulega endurkomu þeirra sem kjósi að snúa aftur til heimaríkis. Í skýrslu Landinfo frá árinu 2023 kemur fram að frá árinu 2019 hafi Sameinuðu þjóðirnar aukið viðveru sína og mannúðaraðstoð í landinu. Þá hafi aðgengi ýmissa hjálparsamtaka að landinu aukist en aðstoðin komi aðallega frá Sameinuðu þjóðunum, Rauða krossinum og öðrum alþjóðlegum félagasamtökum. Í ávarpi mannréttindafulltrúa Sameinuðu þjóðanna, Volker Türk til mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna, dags. 5. júlí 2023, kemur fram að skráðum tilvikum drápa af hálfu öryggisstofnana, og tilkynningum um pyndingar og illa meðferð haldi áfram að fækka. Stjórnvöld hafi haldið áfram að saksækja og refsa embættismönnum sem gerst hafi sekir um pyndingar og illa meðferð. Þó þurfi stjórnvöld að halda áfram að bregðast við tilkynningum um slíka glæpi án undantekninga og af gagnsæi. Í skýrslu hinnar óháðu nefndar á vegum mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna um stöðu mála í Venesúela, frá 18. september 2023, kemur fram að einhver árangur hafi náðst við að draga þá til ábyrgðar sem framið hafi þau brot sem nefndin hafi rannsakað. Þó telji nefndin ástæðu til að ætla að stjórnvöld hafi ekki gert nauðsynlegar breytingar á stofnunum og hafi jafnvel stuðlað að framgangi þeirra sem beri ábyrgð á ofbeldinu. Þá hafi árásum á borgaralegum og lýðræðislegum vettvangi fjölgað á ný. Sé það einkum vegna stefnu stjórnvalda er miði að því að þagga niður í stjórnarandstöðu og gagnrýni á forseta landsins og ríkisstjórn hans. Þrátt fyrir að nefndinni hafi borist færri tilkynningar um meint alvarleg mannréttindabrot síðasta ár en undanfarin ár, hafi hún skrásett fjölda slíkra brota gegn raunverulegum og ætluðum andstæðingum ríkisstjórnarinnar. Brotin hafi einkum beinst að ákveðnum meðlimum borgaralegs samfélags, þ. á m. verkalýðsleiðtogum, blaðamönnum og baráttufólki fyrir mannréttindum.

Hinn 15. nóvember 2023 aðstoðuðu Útlendingastofnun og embætti ríkislögreglustjóra, í samvinnu við Landamæra- og strandgæslustofnun Evrópu (Frontex), 180 venesúelska ríkisborgara við að snúa aftur heim til Venesúela í sjálfviljugri heimför. Í kjölfarið bárust fregnir af því að umræddir einstaklingar hefðu ekki fengið að fara frjálsir ferða sinna af flugvellinum í Karakas, vegabréf þeirra hefðu verið haldlögð og einhverjir sætt yfirheyrslum af hálfu yfirvalda. Samkvæmt tilkynningu á heimasíðu dómsmálaráðuneytisins 4. desember 2023 kemur fram að haft hafi verið samband við alla einstaklinga í framangreindu flugi sem höfðu skráð tölvupóstföng hjá Útlendingastofnun og þeim sendur spurningalisti á spænsku. Meginniðurstöður þeirra svara sem borist hefðu, um 83 svör sem næðu til 99 einstaklinga, væru að nær allir hafi komist á áfangastað eða væru á leið þangað auk þess sem einn aðili hafi verið kominn til annars ríkis. Þá hafi allir sem svöruðu verið með vegabréf sín og flestir haft ferðastyrk íslenskra stjórnvalda í fórum sínum. Fólkið hafi ekki sætt hefðbundnu landamæraeftirliti en þess í stað verið flutt í móttökumiðstöð þar sem m.a. hafi verið gerð Covid próf og það spurt út í ferðir sínar áður en það hafi verið frjálst ferða sinna eftir um sólarhring. Fyrir umrætt leiguflug höfðu íslensk stjórnvöld veitt alls 135 ríkisborgurum Venesúela aðstoð við sjálfviljuga heimför á þessu ári með hefðbundnu áætlunarflugi án vandkvæða við komu til Venesúela.

Ákvæði 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 37. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:

Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og bókun við samninginn frá 31. janúar 1967, sbr. einnig 38. gr. laga þessara.

Í 38. gr. laga um útlendinga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr., á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggst og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:

Ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr. eru þær athafnir sem í eðli sínu eða vegna þess að þær eru endurteknar fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samsafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.

Í 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga er fjallað um í hverju ofsóknir geta falist. Þá eru þær ástæður sem ofsóknir þurfa að tengjast skilgreindar nánar í 3. mgr. 38. gr. laganna.

Í 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga kemur fram að þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð séu:

a. ríkið,

b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess,

c. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök samkvæmt b-lið, þ.m.t. alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.

Orðasambandið „ástæðuríkur ótti við að vera ofsóttur“ í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga inniheldur huglæga og hlutlæga þætti og þarf að taka tillit til hvors tveggja þegar mat er lagt á umsókn um alþjóðlega vernd. Mat á því hvort ótti umsækjanda sé ástæðuríkur getur verið byggt á persónulegri reynslu umsækjanda sem og á upplýsingum um ofsóknir sem aðrir í umhverfi hans eða þeir sem tilheyra sama hópi hafa orðið fyrir. Umsækjandi sem hefur sýnt fram á að hann hafi þegar orðið fyrir ofsóknum í heimaríki, sbr. 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, eða beinum og marktækum hótunum um slíkar ofsóknir, yrði almennt talinn hafa sýnt fram á ástæðuríkan ótta við slíkar ofsóknir snúi hann aftur til heimaríkis nema talið verði að miklar líkur séu á því að slíkar ofsóknir yrðu ekki endurteknar, t.d. þar sem aðstæður í heimaríki hans hafi breyst. Þótt umsækjandi um alþjóðlega vernd skuli njóta vafa upp að ákveðnu marki, verður umsækjandinn með rökstuddum hætti að leiða líkur að því að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Frásögn umsækjanda og önnur gögn um einstaklingsbundnar aðstæður hans verða því almennt að fá stuðning í hlutlægum og áreiðanlegum upplýsingum um heimaríki umsækjanda, stjórnvöld, stjórnarfar og löggjöf þess. Þá er litið til sambærilegra upplýsinga um ástand, aðstöðu og verndarþörf þess hóps sem umsækjandi tilheyrir eða er talinn tilheyra. 

Kærunefnd hefur við mat sitt á umsókn kæranda haft til hliðsjónar handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um málsmeðferð og viðmið við mat á umsókn um alþjóðlega vernd (Handbook and Guidelines on Procedures and Criteria for Determining Refugee Status, Genf 2019). Þá hefur aðferðarfræði trúverðugleikamats kærunefndar tekið mið af skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannasjóðs Evrópusambandsins um trúverðugleikamat, eftir því sem við á (Beyond Proof: Credibility Assessment in EU Asylum Systems, Brussel 2013).

Kærandi byggir umsókn sína um alþjóðlega vernd á því að hann og börn hans séu í hættu í heimaríki sínu vegna almenns ástands þar. Kærandi byggir jafnframt á því hann sé í hættu í heimaríki sínu vegna fjárkúgana og hótana glæpagengja eða skæruliða. Kærandi telur stjórnvöld í Venesúela hvorki hafa getu né vilja til að veita honum og börnum sínum vernd.

Í viðtölum hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að vera sýrlenskur og venesúelskur ríkisborgari og vera fæddur og uppalinn í Venesúela. Hann hafi búið í borginni Sabaneta í Barinas fylki þar til hann hafi flúði til Sýrlands frá Venesúela 9. janúar 2022. Kærandi hafi farið til Sýrlands til að sækja börn sín og þau hafi flúið frá Sýrland 28. september 2022. Þau hafi komið til Íslands í leit að betri framtíð. Kærandi greindi frá því að eiginkona hans sé með sýrlenskt vegabréf. Hún hafi heimild til að ferðast en að hún hafi þurft vegabréfsáritun til Íslands og hafi því ekki komið með þeim.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun 1. nóvember 2022 greindi kærandi frá því að hann hafi lent í vandræðum með glæpagengi sem hafi verið að ræna hann í Venesúela. Glæpagengin hafi einnig hótað að ræna honum og börnum hans. Hann greindi frá því að óttast glæpagengi í Venesúela og hryðjuverkahópa í Sýrlandi og vera hræddur um að fjölskylda sín yrði drepin eða börnum hans rænt. Honum hafi borist líflátshótanir og hann óttist að verða drepinn ef hann snúi aftur til Venesúela. Í viðtali hjá Útlendingastofnun 15. júní 2023 greindi kærandi frá því að hafa fengið fjárkúgunarsímtöl frá skæruliðum í Venesúela í mörg ár. Honum hafi borist símtöl úr leyninúmerum og hafi verið beðinn um að greiða háar fjárhæðir. Þeir hafi einnig hótað að ræna börnunum hans og jafnvel drepa þau. Þá hafi bílar elt hann úti á götu og steini hafi verið kastað í fyrirtæki föður hans þar sem kærandi starfaði. Í mars 2019 hafi skæruliðar komið á bíl og reynt að ræna dóttur hans sem var á leið í leikskóla með starfsmanni kæranda. Kærandi hafi náð að bjarga henni og koma henni inn í leikskólann áður en þeir náðu til hennar. Hann greindi frá því að þetta atvik hafi tengst því að hann hafi ekki getað borgað þeim. Eftir þetta atvik þá hafi hann flutt eiginkonu sína og börn til Sýrlands en hann hafi búið áfram í Venesúela. Hann greindi einnig frá því að hafa fengið morðhótanir í Venesúela og óttast að hann yrði drepinn ef hann sneri til baka til Venesúela.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun 1. nóvember 2022 greindi kærandi frá því að það hafi verið brotist inn í íbúð fjölskyldunnar í Sýrlandi þar sem eiginkona hans og börn hafi dvalið en að þau hafi náð að komast undan. Í kjölfar þessa atviks hafi hann ákveðið að fara til Sýrlands, ná í börnin sín og fara með þau til Íslands. Í viðtali hjá Útlendingastofnun 15. júní 2023 greindi kærandi frá því að hann hafi fjármagnað ferðalag sitt til Íslands með því að fá lán hjá fjarskyldum frænda sínum í Sýrlandi. Þá hafi hann einnig selt land sem hann hafi átt í Sýrlandi. Kærandi greindi frá því að tengdafaðir frænda hans hafi hótað kæranda vegna skuldar. Hann hafi hótað að vinna eiginkonu kæranda mein. Þá greindi kærandi frá því að frændi hans og tengdafaðir hafi keypt landið sem kærandi átti í Sýrlandi, en síðar í viðtali greindi kærandi frá að hann hafi látið þá hafa landið sem tryggingu fyrir skuld sinni. Þá greindi kærandi frá því að þessir einstaklingar hafi borið ábyrgð á framangreindu innbroti í íbúð fjölskyldunnar. Þegar þeir hafi hótað að ræna börnunum hans í júlí 2022 hafi hann keypt miða og farið úr landi án þess að kveðja neinn. Kærandi greindi frá því að ástandið í bæði Sýrlandi og Venesúela hafi verið mjög slæmt, í Venesúela hafi glæpgengi gengið laus. Hann hafi óttast að hann eða börn hans yrðu drepin eða þeim rænt og honum hafi verið hótað lífláti í Venesúela.

Kærandi greindi frá því að tilheyra hvorki sérstöku þjóðarbroti né minnihlutahópi í heimaríki sínu. Þá greindi kærandi einnig frá því að hann sé hvorki aðili að stjórnmálaflokki né virkur í þágu tiltekins málstaðar í heimaríki sínu. Hann og börn hans væru við góða andlega og líkamlega heilsu. Dóttir hans þyrfti á HGH hormónameðferð að halda því hún yxi ekki eðlilega. Veikindi hennar hafi verið greind í Sýrlandi og að hún hafi fengið hormónasprautur þar.

Að teknu tilliti til framangreinds er að mati kærunefndar ekki ástæða í efa að kærandi hafi orðið fyrir fjárkúgunum og áreiti af hendi glæpahópa í heimaríki sínu Venesúela.

Kærandi greindi frá því að hann óttist ofsóknir af hálfu yfirvalda ef hann snúi til baka til Venesúela fyrir það eitt að hafa sótt um vernd í öðru landi. Af heimildum verður ekki ráðið að einstaklingar sem snúa til baka til Venesúela sæti ofsóknum eða áreiti stjórnvalda af þeirri ástæðu einni að hafa sótt um alþjóðlega vernd utan heimaríkisins og fengið synjun. Verður því að líta svo á að aðeins þeir einstaklingar sem fyrir eiga á hættu ofsóknir af hálfu stjórnvalda í Venesúela séu í hættu við endursendingu.

Að öðru leyti hefur kærandi ekki borið fyrir sig að eiga á hættu ofsóknir af neinum þeim ástæðum sem taldar eru upp í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Þá hefur kærandi engin gögn lagt fram sem sýna fram á að hann hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir í skilningi ákvæðisins.

Samkvæmt 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga skal, við mat skv. 1. og 2. mgr. 37. gr. í málum sem varða börn, fylgdarlaus sem önnur, hafa það sem er barninu fyrir bestu að leiðarljósi. Í ákvæðinu kemur fram að við það mat beri að líta til möguleika barns á fjölskyldusameiningu, öryggis barnsins, velferðar og félagslegs þroska auk þess sem taka skal tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska.

Útlendingastofnun tók viðtal við A þar sem hún lýsti aðstæðum sínum í Venesúela. Ekki þótti ástæða til að taka viðtal við B vegna ungs aldurs hans. Leggur kærunefnd mat á hagsmuni A og B samkvæmt 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga með hliðsjón af upplýsingum úr fyrirliggjandi gögnum málsins og framangreindum aðstæðum í heimaríki þeirra. Að mati kærunefndar var sjónarmiðum barnanna A og B nægilega komið á framfæri með framburði kæranda, framburði A, og hagsmunagæslu talsmanns. Kærunefnd telur að teknu tilliti til ákvæða barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og íslenskrar löggjafar um barnavernd, að engin rök standi í vegi fyrir því að A og B fylgi föður sínum aftur til heimaríkis. Í viðtali hjá Útlendingastofnun kvað A að hún hafi farið í leikskóla í Venesúela. Hún hafi flutt til Sýrlands þegar hún hafi verið fjögurra ára og byggi þar ásamt fjölskyldu sinni og ömmu. Hún hafi ekki farið til Venesúela síðan hún hafi flutt þaðan og eigi ekki fjölskyldu þar.

Kærunefnd horfir m.a. til þess að börn þau sem um ræðir eru í fylgd föður síns, en hann er almennt heilsuhraustur og vinnufær og njóta börnin stuðnings hans. Þá sé móðir barnanna með sýrlenskt vegabréf, hafi heimild til að ferðast frá Sýrlandi að sögn kæranda, hafi búið í Venesúela áður frá 2012-2019 og er gift venesúelskum ríkisborgara og hefur því möguleika á að sameinast þeim í Venesúela og jafnvel öðlast ríkisborgararétt. Líkt og áður greinir stendur A og B til boða gjaldfrjáls grunnskólamenntun í heimaríki sínu. Þá bera gögn málsins með sér að fjölskyldumeðlimir hafi getað leitað sér læknisþjónustu í Venesúela og fengið hana. Einstaklingsbundnar aðstæður barna kæranda eru ekki með þeim hætti að þau teljist í hættu við endursendingu til heimaríkis. Þá bendir ekkert til þess að börnum kærenda verði mismunað eða þau útilokuð frá réttindum sem almennt bjóðast börnum í Venesúela.

Með vísan til framangreinds er það mat kærunefndar, að teknu tilliti til sjónarmiða um öryggi, velferð og félagslegan þroska barnanna, að það sé þeim fyrir bestu að fylgja föður sínum til heimaríkis síns.

Að framangreindu virtu er það mat kærunefndar að kærandi og börn hans hafi ekki sýnt fram á ástæðuríkan ótta við ofsóknir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Telur kærunefnd því ljóst að kærandi og börn hans uppfylli ekki skilyrði 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamenn hér á landi.

Ákvæði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga er útlendingur einnig flóttamaður ef, verði hann sendur aftur til heimaríkis síns, raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða hann verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Sama gildir um ríkisfangslausan einstakling.

Við mat á því hvort aðstæður kæranda séu slíkar að þær eigi undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga hefur kærunefnd talið rétt að líta til 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur fjallað um það mat sem þarf að fara fram þegar metið er hvort kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem falli undir 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sem bannar pyndingar og ómannlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Hefur dómstóllinn sagt að 3. gr. sáttmálans geti átt við þegar hættan stafar frá einstaklingum eða hópi fólks sem ekki séu fulltrúar stjórnvalda. Kærandi verður þó að geta sýnt fram á að gildar ástæður séu til að ætla að um raunverulega hættu sé að ræða og að stjórnvöld í ríkinu séu ekki í stakk búin til að veita viðeigandi vernd. Ekki er nóg að aðeins sé um að ræða möguleika á illri meðferð og verður frásögn kæranda að fá stuðning í öðrum gögnum (sjá t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008, 110 mgr., og H.L.R. gegn Frakklandi (mál nr. 24573/94) frá 29. apríl 1997, 40. mgr.).

Með úrskurðum kærunefndar nr. 539/2023, 526/2023 og 525/2023 frá 27. september 2023 komst nefndin að þeirri niðurstöðu, með vísan til alþjóðlegra skýrslna um ástandið í Venesúela, að í landinu væri ekki stríð eða útbreidd vopnuð átök. Þó öryggisástand í landinu væri enn ótryggt og glæpa- og morðtíðni há hafi dregið úr átökum í landinu undanfarin ár og hafi þau að mestu verið staðbundin við svæði við landamæri Kólumbíu. Var því talið að aðstæður í landinu næðu ekki því marki að sérhver einstaklingur sem þangað færi ætti á hættu að láta lífið eða verða fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum. Vísaði nefndin þá til þess að efnahagsástand í landinu hafi þokast í rétta átt með afléttingum ýmissa viðskiptaþvingana, innflutningstakmarkana og verð- og gjaldeyrisstýringar. Ákveðnar breytingar hafi orðið á stjórnarfari landsins síðasta árið og með því samkomulagi sem ríkisstjórn Maduro og stjórnarandstaðan hafi undirritað í nóvember 2022 virðist viðhorf samningsaðila hafa breyst og bendi til þess að aðilar séu tilbúnir að vinna saman að bættum aðstæðum í landinu. Framangreindur samningur og samtal milli stjórnar og stjórnarandstöðu í landinu bæri með sér að dregið hafi úr því pólitíska ójafnvægi sem áður hafi ríkt þegar íbúar Venesúela og aðrar þjóðir hafi skipst í fylkingar með tveimur sitjandi forsetum landsins. Stjórnvöld í Venesúela hafi nú viðurkennt þörfina á mannúðaraðstoð og greint frá þeim vilja sínum að vinna að bættu réttarkerfi í landinu en ríkisstjórn Maduro hafi fram að því hafnað allri mannúðaraðstoð og lokað fyrir innflutning til landsins. Auk þess höfðu fjölmörg ríki heims sett á Venesúela viðskiptaþvinganir sem vonir standi til að létt verði á vinni stjórnvöld í Venesúela með alþjóðasamfélaginu að umbótum í landinu. Samkvæmt alþjóðlegum skýrslum líti út fyrir að forsetakosningar verði í landinu árið 2024, efnahagur landsins hafi þokast í rétta átt síðustu árin, olíuviðskipti hafi hafist að nýju og samningur verið gerður milli stjórnar og stjórnarandstöðu um aukna mannúðaraðstoð í landinu. Er það því jafnframt mat kærunefndar að þrátt fyrir alvarlega stöðu í Venesúela þá nái almennar aðstæður þar ekki því alvarleikastigi að hver sem þar sé staddur teljist eiga á hættu dauðarefsingu eða ómannúðlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

Það er því afstaða kærunefndar, með vísan til niðurstöðu framangreindra úrskurða og gagna um Venesúela, að frekari persónulegir þættir þurfi að vera til staðar svo umsækjandi um alþjóðlega vernd frá Venesúela teljist eiga á hættu meðferð í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Í úrskurðunum féllst kærunefnd á breytta framkvæmd Útlendingastofnunar og eiga þau sjónarmið við að breyttu breytanda í úrskurði þessum. Hið sama á við um málsástæður kæranda varðandi gildissvið hinnar breyttu framkvæmdar, réttmætar væntingar og áhrif jafnræðisreglunnar.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að vera fæddur og uppalinn í Venesúela. Hann hafi búið í Sabaneta borg í Barninas fylki þar til hann flúði heimaríkis sitt 9. janúar 2022 til Sýrlands. Samkvæmt landaheimildum er Barinas fylki staðsett í suðvesturhluta Venesúela og er borgin Barinas höfuðborg þess. Heimildir bera ekki með sér að átök eða árásir á almenna borgara séu tíðar í heimafylki kæranda. Samkvæmt landaupplýsingum, m.a. korti og upplýsingum á vefsíðu ACLED (e. The Armed Conflict Location & Event Data Project), eru ekki virk átök eða óeirðir á því svæði sem kærandi hefur tengsl við eða í Venesúela almennt.

Með vísan til framangreinds verður ekki talið að kærandi eigi á hættu að verða fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum verði honum gert að snúa aftur til heimaríkis. Með vísan til fyrri umfjöllunar er það jafnframt mat kærunefndar að ekkert í gögnum málsins eða framburði kæranda gefi tilefni til að ætla að sérstakar aðstæður hans leiði til þess að hann eigi á hættu að sæta ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu snúi hann til baka.

Í ljósi þess sem að framan er rakið og þeirra gagna sem liggja fyrir um heimaríki kæranda er það mat kærunefndar að aðstæður kæranda og barna hans þar séu ekki þannig að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 37. gr. laganna. Er því ljóst að kærandi og börn hans uppfylla heldur ekki skilyrði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamenn hér á landi.

Alþjóðleg vernd á grundvelli 40. gr. laga um útlendinga

Þar sem kærunefnd hefur komist að þeirri niðurstöðu að kærandi og börn hans uppfylli ekki skilyrði 1. eða 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga eiga þau ekki rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi, sbr. 40. gr. laga um útlendinga.

Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem staddur er hér á landi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, þrátt fyrir að skilyrði 37. gr. séu ekki uppfyllt, ef útlendingur getur sýnt fram á ríka þörf fyrir vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða í landi sem honum yrði vísað til. Kærunefnd telur, með vísan til orðalags ákvæðisins um „ríka þörf fyrir vernd“ auk lögskýringargagna sem fylgdu greininni, að dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verði ekki veitt nema aðstæður, bæði almennar og sérstakar m.t.t. heilsufars og félagslegra þátta, auk atvika sem þar er vísað til, nái ákveðnu alvarleikastigi þegar málið er virt í heild.

Í athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að ákvæði 1. mgr. 74. gr. vísi m.a. til erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki og væri þar oft um að ræða viðvarandi mannréttindabrot í ríkinu og þá aðstöðu að yfirvöld veiti þegnum sínum ekki vernd gegn ofbeldisbrotum eða glæpum. Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, með síðari breytingum, kemur m.a. fram að með erfiðum almennum aðstæðum sé vísað til alvarlegra aðstæðna í heimaríki sem ekki séu staðbundin, svo sem vegna langvarandi stríðsátaka. Þá kemur fram að erfiðar almennar aðstæður taki að jafnaði ekki til neyðar af efnahagslegum rótum eða náttúruhamfara, svo sem fátæktar, hungursneyðar eða húsnæðisskorts. Eigi það m.a. við þegar í heimaríki viðkomandi ríki óðaverðbólga, atvinnuleysi í ríkinu sé mikið eða lágmarkslaun dugi ekki fyrir framfærslu.  

Af framangreindum gögnum að ráða hafa yfirvöld í Venesúela og vopnahópar á þeirra vegum síðustu ár framið glæpi sem fallið geta undir skilgreiningu á glæpum gegn mannkyni (e. crimes against humanity) og hafi meirihluti glæpanna verið hluti af kerfisbundnu ofbeldi gegn almenningi í þeim tilgangi að efla stjórn ríkisins. Almennir borgarar hafi hvorki getað treyst á vernd lögregluyfirvalda né opinbera aðstoð. Þá benda heimildir til þess að sú alvarlega staða sem ríkt hefur í landinu hvað varðar efnahag þess og aðgang almennings að fæðu, hreinu vatni og heilbrigðisþjónustu hafi fyrst og fremst stafað af aðgerðum og aðgerðarleysi stjórnvalda en ekki af utanaðkomandi þáttum líkt og þurrkum eða öðrum náttúruhamförum. Af þeim gögnum og skýrslum sem kærunefnd hefur farið yfir má ráða að þrátt fyrir það ótrygga ástand sem ríkt hefur í landinu síðustu ár hafi ástandið undanfarna mánuði breyst til batnaðar m.a. með breyttu viðhorfi stjórnvalda til mannúðaraðstoðar og vilja til að vinna að bættu réttarkerfi landsins. Þá er hvorki stríð í landinu né útbreidd vopnuð átök. Með vísan til fyrri umfjöllunar um aðstæður kæranda og aðstæður í heimaríki hans, er það niðurstaða kærunefndar að gögn málsins bendi ekki til þess að almennar aðstæður sem bíði kæranda í heimaríki nái því alvarleikastigi sem 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga kveði á um.

Í athugasemdum við 74. gr. frumvarps til laga um útlendinga kemur fram að í samræmi við ákvæði alþjóðlegra skuldbindinga og almennra laga sé lagt til að tekið sé sérstakt tillit til barna, hvort sem um er að ræða fylgdarlaus börn eða önnur börn. Í því ljósi og með hliðsjón af meginreglunni um að það sem barni er fyrir bestu skuli hafa forgang þegar teknar eru ákvarðanir um málefni þess, sbr. jafnframt 2. mgr. 10. gr. og 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga, telur kærunefnd að við mat á því hvort skilyrði 1. mgr. 74. gr. laganna séu fyrir hendi skuli taka sérstakt tillit til þess ef um barn er að ræða og skuli það sem er barni fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun.

Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga og athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að með ríkri þörf á vernd af heilbrigðisástæðum sé m.a. miðað við að um skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm sé að ræða og meðferð við honum væri aðgengileg hér á landi en ekki í heimaríki viðkomandi. Í þessu sambandi kemur jafnframt fram að meðferð teljist ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur er hér átt við þau tilvik þar sem meðferð sé til í heimaríkinu en viðkomandi eigi ekki rétt á henni. Þá kunna að falla undir 1. mgr. 74. gr. mjög alvarlegir sjúkdómar sem ekki teljast lífshættulegir, svo sem ef sýnt þykir að þeir muni valda alvarlegu óbætanlegu heilsutjóni. Ef um langvarandi sjúkdóm sé að ræða væru ríkari verndarsjónarmið fyrir hendi ef sjúkdómur væri á lokastigi. Jafnframt væri rétt að líta til þess hvort meðferð hafi hafist hér á landi og ekki væri læknisfræðilega forsvaranlegt að rjúfa meðferð, sem og til atriða sem varði félagslegar aðstæður útlendings og horfur hans.

Í viðtali 1. nóvember 2022 hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að vera við góða líkamlega og andlega heilsu. Kærandi greindi einnig frá því að börn hans væru við góða heilsu. A hafi fengið rör í eyrun og hún hafi fengið HGH hormónameðferð í Sýrlandi því hún vaxi ekki eðlilega. Í viðtali 15. júní 2023 hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að vera með nýrnasteina og að hann fengi verki í hvert sinn sem hann pissaði. Hann hafi ekki leitað sér aðstoðar í Venesúela vegna nýrnasteina heldur hafi hann tekið náttúrulækningalyf. Í Sýrlandi hafi hann fengið sprautur vegna sársaukans sem fylgdi því að hafa nýrnasteina. Kærandi greindi frá því að hafa sótt sér læknisþjónustu í Venesúela og að hann hafi þurft að greiða fyrir hana. Kærandi greindi frá því að heilsa barna hans sé nú góð. Í Sýrlandi hafi sonur hans fengið astma út af reyk í loftinu og hann hafi þurft að fara á spítala þar til að fá súrefni. Hann sé með ofnæmi sem hann hafi fengið krem við hér á landi. Í Sýrlandi hafi dóttir hans fengið um sjö vaxtarhormónasprautur. Kærandi lagði fram heilbrigðisgögn frá Sýrlandi hvað varðar dóttur sína A.

Kærandi hefur greint frá því að hann hafi getað leitað sér læknisþjónustu í Venesúela en hafi þurft að borga fyrir hana. Ekki hafa verið lögð fram gögn um að A, dóttir kæranda, hafi fengið hormónameðferð hér á landi. Verður ekki annað séð en að kærandi og börn hans geti leitað sér heilbrigðisaðstoðar í heimaríki og fengið hana. Að framangreindu virtu verður það ekki talið að kærandi og börn hans þarfnist meðferðar sem sé svo sérhæfð að þau geti einungis hlotið hana hérlendis né að rof á henni yrði til tjóns fyrir kæranda og börn hans verði þeim gert að snúa aftur til heimaríkis. Verður því ekki séð að kærandi og börn hans hafi sýnt fram á ríka þörf á vernd af heilbrigðisástæðum, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga og athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga er jafnframt fjallað um erfiðar félagslegar aðstæður. Þar kemur fram að átt sé við að útlendingur hafi þörf á vernd vegna félagslegra aðstæðna í heimaríki og eru þar nefnd sem dæmi aðstæður kvenna sem hafa sætt kynferðislegu ofbeldi, sem leitt getur til erfiðrar stöðu þeirra í heimaríki, eða aðstæður kvenna sem ekki fella sig við kynhlutverk sem er hefðbundið í heimaríki þeirra og eiga á hættu útskúfun eða ofbeldi við heimkomu. Verndarþörf þjóðfélagshópa að öðru leyti myndi fara eftir aðstæðum í hverju máli.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá að hafa orðið fyrir hótunum og fjárkúgun af hálfu glæpahópa eða skæruliðahópa í heimaríki. Í Venesúela hafi hann unnið í fyrirtæki í eigu föður síns og hafi haft um 200 dollara í mánaðartekjur. Hann greindi frá því að hann hafi síðar lokað fyrirtækinu. Hann hafi búið í húsi í eigu föður síns og eftir að hann hafi látist hafi hann greitt leigu til móður sinnar og systur þegar hann hafi haft efni á því. Hann hafi getað borgað leigu og keypt mat en ekki mikið meira. Kærandi greindi frá því að börn hans gætu bara farið í skóla og leikið við bekkjarfélaga sína í Venesúela en gætu ekki leikið sér úti vegna ástands þar. Kærandi hefur greint frá því að hafa stundað atvinnu í heimaríki og að dóttir hans hafi gengið í leikskóla þar. Kærunefnd telur því að félagslegar aðstæður kæranda við komu til heimaríkis séu ekki slíkar að þær geti talist erfiðar í skilningi 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Við mat á þörf fyrir dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða hefur kærunefnd litið sérstaklega til aðstæðna barna í Venesúela. Í Venesúela er gjaldfrjáls menntun til 18 ára aldurs, skólaskylda á grunnskólastigi, aðstoð er í boði fyrir efnaminni fjölskyldur af hálfu stjórnvalda í formi CLAP mataraðstoðar auk þess sem innlend og alþjóðleg mannúðarsamtök styðja stjórnvöld í að veita menntun, heilbrigðisþjónustu og matvælaaðstoð til barna m.a. í formi matar í skólum landsins. Hvorki almennar aðstæður í Venesúela né einstaklingsbundnar aðstæður barns kæranda í máli þessu eru með þeim hætti að rétt sé að veita dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða.

Þegar frásögn kæranda, upplýsingar um heimaríki kæranda og gögn málsins eru virt í heild er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi ekki sýnt fram á aðstæður sem ná því alvarleikastigi að hann teljist hafa ríka þörf á vernd líkt og kveðið er á um í 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Við þetta mat hefur kærunefnd litið til hagsmuna barna kæranda í samræmi við 2. mgr. 10. gr. laga um útlendinga og 3. mgr. 25. sömu laga. Því er fallist á það með Útlendingastofnun að aðstæður kæranda og barna hans í heimaríki séu ekki með þeim hætti að veita beri þeim dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem sótt hefur um alþjóðlega vernd hér á landi og ekki fengið niðurstöðu í máli sínu á stjórnsýslustigi innan 18 mánaða eftir að hann lagði inn umsókn sína dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða að uppfylltum skilyrðum 2. og 3. mgr. ákvæðisins. Ef um barn er að ræða skal miða við 16 mánuði.

Kærandi og börn hans sóttu um alþjóðlega vernd 29. september 2022 og á ákvæði 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga því ekki við.

Bann við endursendingu samkvæmt 42. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er ekki heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan einstakling til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Samkvæmt 2. mgr. sömu greinar er einnig óheimilt að senda útlending til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.

Með vísan til umfjöllunar að framan um heimaríki kæranda telur kærunefnd að þær aðstæður sem ákvæðið tekur til eigi ekki við í máli kæranda og barna hans. Standa ákvæði 42. gr. laga um útlendinga því ekki í vegi fyrir endursendingu kæranda og barna hans þangað.

Brottvísun og endurkomubann

Í 3. mgr. 43. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 kemur fram að verði umsækjanda um alþjóðlega vernd ekki veitt dvalarleyfi skuli Útlendingastofnun taka ákvörðun um frávísun eða brottvísun eftir ákvæðum laga um útlendinga og að útlendingur sem sótt hafi um alþjóðlega vernd teljist hafa áform um að dveljast á landinu lengur en 90 daga. Samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga skal vísa útlendingi úr landi sem dvelst ólöglega í landinu eða þegar tekin hefur verið ákvörðun sem bindur enda á heimild útlendings til dvalar í landinu svo framarlega sem ákvæði 102. gr. laganna eigi ekki við. Í 102. gr. laganna er kveðið á um vernd og takmarkanir við ákvörðun um brottvísun. Samkvæmt 3. mgr. 102. gr. laganna skal brottvísun ekki ákveðin ef hún, með hliðsjón af atvikum, alvarleika brots og tengslum útlendings við landið, felur í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart útlendingi eða nánustu aðstandendum hans. Sérstaklega skal taka tillit til þess ef um barn eða nánasta aðstandanda barns er að ræða og skal það sem barni er fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun. Við mat á því hvort brottvísun feli í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart kæranda verður að hafa ákvæði 71. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. nr. 33/1944 og 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu um friðhelgi einkalífs og fjölskyldu til hliðsjónar. Þegar útlendingur á hagsmuna að gæta í skilningi 8. gr. sáttmálans verður ákvörðun um brottvísun að vera í samræmi við það sem lög mæla fyrir um og nauðsyn ber til í lýðræðislegu þjóðfélagi, sbr. 2. mgr. 8. gr. sáttmálans.

Samkvæmt 1. mgr. 101. gr. laganna felst í endanlegri ákvörðun um brottvísun skylda útlendings til þess að yfirgefa Schengen-svæðið nema viðkomandi hafi heimild til dvalar í öðru ríki sem er þátttakandi í Schengen-samstarfinu. Með lögum um landamæri nr. 136/2022 voru gerðar breytingar á 98. gr. laga um útlendinga sem leiða til þess að brottvísun og endurkomubann er nú beitt þar sem áður var beitt frávísun en veita skal frest til sjálfviljugrar heimfarar sbr. 104. gr. laga um útlendinga. Sá sem sætir slíkri ákvörðun getur komist hjá endurkomubanni með því að yfirgefa landið sjálfviljugur innan frestsins sbr. 3. mgr. 101. gr. laga um útlendinga.

Samkvæmt gögnum málsins sótti kærandi um alþjóðlega vernd hér á landi 29. september 2022 fyrir sig og börn sín. Eins og að framan greinir hefur umsóknum kæranda og barna hans um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verið synjað. Hafa þau því ekki frekari heimild til dvalar hér á landi. Af framangreindu leiðir að með hinni kærðu ákvörðun var réttilega bundinn endir á heimild kæranda og barna hans til dvalar hér á landi og ber því samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga að vísa kæranda og börnum hans úr landi nema 102. gr. laganna standi því í vegi. Það athugast að kæra til kærunefndar útlendingamála frestaði réttaráhrifum hinna kærðu ákvarðana.

Kæranda var í viðtali hjá Útlendingastofnun 15. júní 2023 leiðbeint um að til skoðunar væri að brottvísa honum og börnum hans frá Íslandi og ákvarða kæranda endurkomubann hingað til lands. Var kæranda gefið færi á að koma að andmælum hvað það varðar. Kærandi kvaðst ekki hafa fjölskyldutengsl á Schengen-svæðinu. Það sé ósanngjarnt að senda þau til baka því þá yrði framtíð hans og barna hans tekin frá þeim.

Af þeim svörum sem kærandi gaf um tengsl sín við Ísland og önnur Schengen-ríki verður ekki séð að brottvísun hans og barna hans og endurkomubann hans verði talin ósanngjörn ráðstöfun í garð kæranda eða nánustu aðstandenda hans, sbr. 3. mgr. 102. gr. laga um útlendinga. Þá horfir kærunefnd jafnframt til þess að kærandi getur komist hjá endurkomubanni og afleiðingum þess yfirgefi hann Ísland innan þess frest sem honum er gefinn.

Í ákvörðunarorðum í ákvörðunum Útlendingastofnunar í málum kæranda og barna hans er þeim brottvísað og kæranda ákvarðað endurkomubann til tveggja ára. Var kæranda veittur 15 daga frestur til að yfirgefa landið og yfirgefi hann landið sjálfviljugur innan þess frests verði endurkomubannið fellt niður.

Að mati kærunefndar og með vísan til 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga teljast 15 dagar hæfilegur frestur í tilviki kæranda og barna hans til að yfirgefa landið. Endurkomubann kæranda fellur niður yfirgefi kærandi landið sjálfviljug innan framangreinds frests.

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinna kærðu ákvarðana eru ákvarðanir Útlendingastofnunar í málum kæranda og barna hans staðfestar.

Athygli kæranda er vakin á því að samkvæmt 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum eftir birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ákvörðunarinnar ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.


 

Úrskurðarorð:

Ákvarðanir Útlendingastofnunar í málum kæranda og barna hans eru staðfestar. Endurkomubann kæranda verður fellt úr gildi fari hann sjálfviljugur frá Íslandi innan 15 daga.

The decisions of the Directorate of Immigration in the cases of the appellant and his children are affirmed. If the appellant leaves Iceland voluntarily within 15 days, the re-entry ban will be revoked.

 

 

Þorsteinn Gunnarsson

 

 

Sindri M. Stephensen                                                Þorbjörg I. Jónsdóttir


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum